Gilitrutt

Einu sinni bjó ungur bóndi austur undir Eyjafjöllum. Hann var ákafamaður mikill og starfsamur. Þar var sauðganga góð sem hann var og átti bóndi margt fé. Hann var nýkvæntur þegar þessi saga gjörðist. Kona hans var ung en duglaus og dáðlaus. Hún nennti ekkert að gjöra og skipti sér lítið af búinu. Þetta líkaði bónda mjög illa en gat þó ekki að gjört. Eitt haust fékk hann henni ull mikla og bað hana að vinna hana til vaðmála um veturinn en konan tók ekki líflega undir það. Leið svo fram á vetur að konan tók ekki á ullinni og ámálgaði þó bóndi það oft.

Einu sinni kemur kerling ein heldur stórskorinn til konunnar og bað hana að greiða eitthvað fyrir sér. „Geturðu unnið nokkuð fyrir mig í staðinn?“ segir konan. „Til er það,“ segir kerling, „eða hvað á ég að vinna?“ „Ull til vaðmála,“ segir konan. „Fáðu mér hana þá,“ segir kerling. Konan tekur þá ákaflega stóran ullarpoka og fær henni. Kerling tekur við sekknum, snarar honum á bak sér og segir: „Ég skal koma með voðina á sumardaginn fyrsta.“ „Hvað viltu hafa í kaup?“ segir konan. „Það er nú ekki mikið,“ segir kerling. „Þú skalt segja mér nafn mitt í þriðju gátu og erum við þá sáttar.“ Konan játti því og fer nú kerling burtu.

Líður nú fram veturinn og spyr bóndi hana oft hvar ullin sé. Hún segir hann það engu skipta en hann skuli fá hana á sumardaginn fyrsta. Bóndi lét sér fátt um finnast og líður nú fram á útmánuði. Þá fer konan að hugsa um nafn kerlingar en sér nú engin ráð til að komast eftir því. Varð hún nú áhyggjufull og hugsjúk af þessu. Bóndi sér að henni er brugðið og bað hana segja sér hvað að henni gangi. Hún sagði honum þá upp alla sögu. Var þá bóndi hræddur og segir að nú hafi hún illa gjört því þetta muni tröll vera sem ætli að taka hana.

Einu sinni seinna varð bónda gengið upp undir fjallið og kom hann á grjóthól einn stóran. Hann var að hugsa um raunir sínar og vissi varla af sér. Þá heyrist honum högg í hólnum. Hann gengur á hljóðið og kemur að smugu einni. Sér hann þá hvar kona ein heldur stórvaxin situr að vef. Hefur hún vefinn milli fóta sér og slær hann mjög. Hún kvað fyrir munni sér þetta: „Hæ, hæ og hó, hó. Húsfreyja veit ei hvað ég heiti. Hæ, hæ og hó, hó. Gilitrutt heiti ég, hó, hó. Gilitrutt heiti ég, hæ, hæ og hó, hó.“ Þetta lét hún alltaf ganga og sló vefinn í ákafa. Bóndi varð glaður við og þóttist vita að þetta mundi vera kerling sú sem hafði fundið konu hans um haustið. Hann fer síðan heim og ritar hjá sér á miða nafnið Gilitrutt. Ekki lét hann konu sína heyra það og kom nú hinn síðasti vetrardagur. Þá var húsfreyja mjög angurvær og fór hún ekki í klæði sín um daginn. Bóndi kemur þá til hennar og spyr hvort hún viti nafn vinnukonu sinnar. Hún kvað nei við og segist nú ætla að harma sig til dauða. Bóndi segir að þess þurfi nú ekki við, fékk henni blað með nafninu á og sagði henni upp alla sögu. Hún tók við blaðinu og skalf af hræðslu því hún óttaðist að nafnið kynni að vera rangt. Biður hún bónda að vera hjá sér þegar kerling komi. Hann segir: „Nei og varstu ein í ráðum þegar þú fékkst henni ullina svo það er best að þú gjaldir ein kaupið.“ Fer hann burtu síðan.

Nú kemur sumardagurinn fyrsti og lá konan ein í rúmi sínu en enginn maður annar var í bænum. Heyrir hún þá dunur miklar og undirgang og kemur þar kerling og er nú ekki frýnileg. Hún snarar inn á gólfið vaðmálsstranga miklum og segir: „Hvað heiti ég nú, hvað heiti ég nú?“ Konan var nær dauða en lífi af ótta og segir: „Signý?“ „Það heiti ég, það heiti ég og gettu aftur, húsfreyja,“ segir kerling. „Ása?“ segir hún. Kerling segir: „Það heiti ég, það heiti ég og gettu enn, húsfreyja!“ „Ekki vænti ég að þú heitir Gilitrutt?“ segir þá konan. Kerlingunni varð svo bilt við þetta að hún datt kylliflöt niður á gólfið og varð þá skellur mikill. Rís hún upp síðan, fór burtu og sást aldrei síðan. Konan varð nú fegnari en frá megi segja yfir því að hún slapp frá óvætti þessum með svona góðu móti og varð hún öll önnur. Gjörðist hún iðjusöm og stjórnsöm og vann æ síðan sjálf ull sína.

 

Hlustaðu á söguna:

 

Sögumaður:
Hafdís Erla Bogadóttir

Heimildir:
Íslenskar þjóðsögur.
Höfundur: Benedikt Jóhannesson/Jóhannes Benediktsson

Teiknari:
Eyrún Óskarsdóttir

Tölvugrafík:
Björk Harðardóttir

Hljóðvinnsla:
Hafdís Erla Bogadóttir

Myndband:
Markús Sveinn Markússon

Start typing and press Enter to search

Karfa